top of page
djup1.jpg

Djúpavatn

Silungsveiði

Djúpavatn er 0,15 km² stöðuvatn sunnan Trölladyngju og Soga á Reykjanesskaga í 195 m hæð yfir sjó. Dýpsti hluti þess er 16,7 m og það er líklega gígvatn líkt og Grænavatn á Vesturhálsi og Arnarvatn á Sveifluhálsi. Umhverfi þessa vatns er ákaflega fallegt og friðsælt. Mikið er af bleikju í vatninu en hún er fremur smá. Það var talið fisklaust þar til bleikju af Þingvallastofni var sleppt í það í kringum 1960.  Á hverju ári er sleppt töluverðu af vænum urriða í vatnið og veiðivon þvi góð allt sumarið

Vatnið er afar vinsælt hjá fjölskyldufólki, umhverfið er mjög barnvænt og einungis selt einum aðila í senn og því hægt að hafa vatnið og veiðihúsið út af fyrir sig.  Vegalengdin frá Hafnarfirði er um 25 km, ekið í átt að Krýsuvík og til hægri á móts við malarnámurnar í Vatnsskarði.

Staðsetning: Á Reykjanesi.
Veiðisvæði: Allt vatnið.
Stangafjöldi: Ekki takmarkaður.
Veiðitímabil: 1. júní – 15. september.
Veiðitími: 07.00 - 24.00.
Leyfilegt agn: Allt agn er leyfilegt, netaveiði bönnuð.
Góðar flugur: peacock ýmis afbrigði,  litlar púpur, um að gera að reyna þurrflugurnar þegar lygnir.
Veiðihús: Ágætt veiðihús, snyrting, 2 herbergi m/ 4 kojum, eldhús með gashellu, borðbúnaði og áhöldum, setustofa og  gott úti-kolagrill. Taka með sér rúmfatnað/svefnpoka, borðtuskur og viskastykki.
Reglur: Veiðimenn mega koma í húsið kl.18.00 daginn fyrir skráðan veiðidag, og skulu vera  farnir fyrir kl. 18.00 á síðasta veiðidegi. Muna að ræsta hús og taka með sér allt rusl.
Veiðikort: Ekkert veiðikort, veiði allstaðar í vatninu.
Veiðibók: Liggur frammi í veiðihúsi, mikilvægt að skrá allan afla.
Veiðileyfi: Félagar í SVH fá úthlutað, eftir það eru öll leyfi á www.leyfi.is .

bottom of page