top of page
download.jpg

Hlíðarvatn

Silungsveiði

Hlíðarvatn er rúmlega 3,3 km² stöðuvatn í Selvogi vestanverðum í 1 m hæð yfir sjó. Mesta dýpi þess er 5 m.,  afrennsli þess er Vogsós. Allmikið er af fiski í vatninu og meðalþyngd fer vaxandi, langmest er það bleikja, bæði sjóalin og vatnableikja og á hverju sumri veiðast nokkrar 5 – 7 punda bleikjur.

Hliðarvatn er göfult og talið með bestu bleikjuvötnum sem finnast og fiskurinn annálaður matfiskur. Öll veiði með beitu er stranglega bönnuð í vatninu og mest er veitt  á flugu. Bleikjan getur verið dyntótt og þarf að prófa sig áfram með taumlengd, línuþyngd ofl. eftir aðstæðum.

Veiðihús eru 5 við vatnið. Stangaveiðfélag Hafnarfjarðar (5 stangir),  Ármenn, ( 3 stangir),  Árblik, Stangaveiðfélag Þorlákshafnar (2 stangir), Stangaveiðfélag Selfoss (2 stangir) og Stakkavík (2 stangir).

Frá vatninu blasir við hluti hinnar hafnlausu suðurstrandar landsins og ein merkilegasta kirkja þess, Strandarkirkja. Vegalengdin frá Hafnarfirði er  u.þ.b. 50 km um Krýsuvík og einnig er hægt að fara um Þrengsli og koma að vatninu að austanverðu.

Staðsetning:

Í Selvogi, milli Krýsuvíkur og Þorlákshafnar.


Veiðisvæði:

All vatnið.


Stangafjöldi:

SVH;  5 stangir, seldar saman eða sín í hverju lagi.
Veiðitímabil: 1. maí – 15. September.
Veiðitími: Frjáls.
Leyfilegt agn: Fluga og spúnn.
Góðar flugur: Peacock ýmis afbrigði, litlar púpur, Watson fancy, Blody butcher ofl.
Veiðihús: Ágætt veiðihús, snyrting, 2 herbergi m/ 4 kojum, eldhús með gashellu, borðbúnaði og áhöldum, setustofa og gott úti-kolagrill. Taka með sér rúmfatnað eða svefnpoka, borðtuskur og viskastykki.
Reglur: Veiðimenn mega koma í húsið kl.18.00 daginn fyrir skráðan veiðidag, og skulu vera  farnir fyrir kl. 18.00 á síðasta veiðidegi. Muna að ræsta hús og taka með sér allt rusl.
Veiðikort: Liggur frammi i veiðihúsi og hér:
Veiðibók: Liggur frammi í veiðihúsi, mikilvægt að skrá allan afla!
Veiðileyfi: Félagar í SVH fá úthlutað, eftir það eru öll leyfi á www.leyfi.is.

bottom of page