Leturstærð
Increase Font Size Reset Font Size Decrease Font Size
Slideshow Image 1
Slideshow Image 2
Slideshow Image 3
Slideshow Image 4
Slideshow Image 5
Slideshow Image 6
Slideshow Image 7

Flugukastnámskeið SVH og Námsflokka Hafnarfjarðar

Námsflokkar Hafnarfjarðar í samstarfi við Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar bjóða upp á hin vinsælu flugukastnámskeið á vorönn 2012.  
Kennt er fjóra sunnudagsmorgna kl. 9.30-11.00 í íþróttahúsi Kaplakrika auk útikastæfingar á vordögum.

Námskeiðið hefst sunnudaginn 19. febrúar.
Nánari upplýsingar og innritun í síma 585-5860.
Verð 15.600 kr.

 

Kennsla í fluguhnýtingum

Miðvikudagar kl. 19.30-21.30 frá 15. feb.  til 14. mars.  Alls 5 skipti.

Kennsla fer fram í félagsheimili Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar v/Flatahraun.
Allt efni innifalið og tæki til afnota.
Verð 12.500 kr.

 

Aðalfundur 11 febrúar 2012

Minnum á aðalfundinn 11 febrúar kl 13 í félagsheimilinu að Flatahrauni 29.


Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kosning stjórnarmanna
Í framboði til stjórnar og varastjórnar eru:

  • Finnbogi Albertsson
  • Hallberg Svavarsson
  • Haraldur Víðisson
  • María Petrína Ingólfsdóttir
  • Rafn Arnar Guðjónsson
  • Sigríður Hrólfsdóttir
  • Sigurður Karlsson
  • Stefán Árnason
  • Vilborg Reynisdóttir
  • Þorleifur Sigurðsson

3. Önnur mál

 

Dagskrá vetrarstarfs 2012

Jæja, nú er vetrarstarfið loks að hefjast.

Nú þurfa menn og konur að brýna hnýtingaverkfærin til að framleiða flugur í stórum stíl í vetur. Félagar eru hvattir til að senda inn flugur í okkar árlegu félagskeppni "Efnilegasta Silungaflugan".  Verðlaun verða veitt á lokakvöldinu. Keppt verður bæði í fullorðins- og unglingaflokki og verður tilhögun keppninnar auglýst síðar.

Við byrjum fimmtudaginn 12 janúar 2012 kl. 20.00

 

Nánar...

 

Kastnámskeið á vegum: SVH, SVFR og Kastklúbbs Íslands

Öll námskeiðin eru fjórir sunnudagar frá kl: 20:00 til 22:00 og fara fram í TBR húsinu, Gnoðarvogi 1, 104 Reykjavík.
Allur útbúnaður er á staðnum, þó er þeim sem koma bent á að taka með sér góða inniskó, helst íþróttaskó.
Verðið er kr: 14.000, en 12.000 fyrir félagsmenn í ofangreindum félögum.
ATH, EKKI ERU TEKIN KORT!

Næstu námskeið framundan eru:

  • 8., 15., 22., og 29. janúar
  • 5., 12., 19. og 26. febrúar
  • 4., 11., 18. og 25. mars
  • 1., 8., 15. og 22. apríl

Við viljum benda á að hægt er að kaupa gjafakort á námskeiðin núna fram að jólum.
Verðið á gjafabréfum er þá 10.000 fyrir félagsmenn en 12.000 fyrir aðra.

Útikastæfingarnar sem fylgja verða svo auglýstar sér.
Nánari upplýsingar veitir Svavar í síma: 896 7085

 
Leita á vef SVH
Auglýsingar
www.leyfi.is
Þú færð veiðileyfin þín á www.leyfi.is